


 |
Arahús Guesthouse er gistiheimili í Hafnarfirði. Hafnarfjörður er staðsettur við mjög fallegan fjörð og liggur byggðin allt í kringum fjörðinn, þar búa um 22.000 manns. Milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur eru 11 kílometrar, fyrir framan gistiheimilið er lítið torg
og má segja að það sé staðsett í hjarta Hafnarfjarðar, frá gistiheimilinu eru ca 50 metrar að aðalstrætó stoppustöð, þar getur þú tekið vagn og ferðast bæði innan og utanbæjar þ.e.a.s. til Reykjavíkur og á fleiri áfangastaða.
Veitingastaðir og kaffihús eru í göngufæri frá gistiheimilinu og má þar nefna Tilveruna sem er með mat á sanngjörnu verði
3 réttað á c.a 3000 kr.A Hansen og svo Vikingastaðurinn Fjarann eða Fjörukráin einnig er Pizza Dominos beint fyrir aftan Torgið og ekki má gleyma að nefna Súfistann kaffihús sem er rétt við hliðin á.
Einnig er menningarlistasafnið Hafnarborg í sömu götu ásamt sjóminjasafninu sem einnig er í göngufæri, síðan er ýmislegt að skoða við Fjörukrána, þar er listasmiðja og margt fl.
Verslunarmiðstöðin Fjörður er svo til ská á móti Gistiheimilinu.

Smelltu á kortið til að fá það stækkað.
|